Karamellusnittur – stökkar en samt pínu mjúkar í miðju
Í dag rakst ég á sænska umfjöllun þar sem minnst var á klassíska sænska karamellu”bita”. Þetta eru smákökur sem eru stökkar að utan en seigar í miðjunni, ótrúlega einfaldar en alveg hrikalega bragðgóðar.
Ég bara varð að prófa að baka svona til að rifja upp gamlar minningar – og ég varð heldur betur ekki fyrir vonbrigðum. Ekki nóg með að þetta er alveg svakalega gott og erfitt að klára þetta ekki allt í einu, þá er uppskriftin svo rosalega einföld og fljótleg. Hér kemur uppskriftin – ég ætla svo að gera tvær tegundir í viðbót á næstu dögum, þ.e. með súkkulaðibragði og með piparkökubragði.
Karamellusnittur:
Fjöldi: sirka 50-60 stk.
Ofnhiti: 180°C annað hvort blástur eða undir og yfirhita
Tími: undirbúningur 20 mín. Bakstur 12-15 mín.
200 gr. mjúkt smjör
2,25 dl. sykur
4,5 dl. hveiti
2 msk. síróp
2 tsk. matarsódi
2 tsk. vanillusykur (má líka nota vanilludropa)
2 tsk. mulin engifer (í góðu lagi að sleppa)
Stillið ofninn á 180°C. Blandið öllum hráefnum saman í skál þannig þetta verði að þéttu deigi. Það er gott að setja engifer, en alls ekki nauðsynlegt. Ef smjörið er ekki nógu mjúkt er sniðugt að hnoða þetta í höndunum til að þetta blandist vel.
Gerið 5-6 rúllur úr deiginu og setjið á ofnplötu með bökunarpappír. Hafið ágætt bil á milli rúllanna því þær fletjast út við baksturinn. Þrýstið smá á þær svo að þær fletjist út. Gerið rendur á þær með gaffli til að fá fallegt munstur.
Bakið í ofni í 12-15 mín, allt eftir því hversu stökkar þær eiga að vera. Ef þær eru bakaðar stutt verða þær frekar mjúkar og seigar, en ef þær eru bakaðar lengi verða þær frekar stökkar. Þegar þetta er komið úr ofninum eru lengjurnar skornar á ská í sirka 2 cm. breiðar sneiðar. Að lokum er þetta látið kólna áður en þetta er borðað af bestu lyst 🙂 Þessar smákökur geymast best í lokuðu íláti.
No Comments
No comments yet.
RSS feed for comments on this post.
Leave a comment