Ég rakst á þessa uppskrift á sænskri síðu og leist strax vel á hana. Það sem heillaði fyrst og fremst var það hve fljótleg og einföld hún er. Það tók mig ekki nema 10 mín að hræra deigið, koma því í formið og inn í ofn í fyrsta skipti sem ég bakaði hana. Hráefnin eru líka einföld og almennt eitthvað sem er alltaf til heima hjá mér og svo má leika sér aðeins með ávextina. Hér að neðan í minni útgáfu af uppskriftinni nota ég hindber, en það má nota ýmislegt annað. T.d. rabbabara, epli sem búið er að velta upp úr kanil og sykri, bláber eða bara það sem manni dettur í hug. Þetta hentar vel með kaffinu eða sem eftirréttur. Gott að hafa þeyttan rjóma eða jafnvel vanilluís með.
Fljótleg hindberjakaka
Tími: Undirbúningur 10 mín – bakstur 30 mín
Hiti: 175°C
75 gr. smjör
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
2 dl. sykur
2 egg
2,5 dl. hveiti
2 dl. frosin hindber (eða aðrir ávextir)
Smjörið er brætt í potti. Þegar það er alveg bráðið er slökt á hellunni og lyftidufti, vanilludropum, sykri, eggjum og hveiti bætt út í. Hrært saman þannig að þetta blandist vel. Það þarf ekki að þeyta neitt, heldur er alveg nóg að hræra bara með sleif eða álíka.
Smelluform, eldfast mót eða bökuform (eða annað sambærilegt) er smurt með smjöri eða olíu. Ef það á að taka kökuna úr forminu og bera fram á kökudisk er gott að nota smjörpappír í botninn. Deigið sett í formið og dreift úr því ef þess þarf. Að lokum er berjunum dreift yfir deigið. Passa að dreifa vel úr þeim.
Kakan er svo bökuð í 175°C í 30 mín. Það er gott að stinga prjón í miðjuna til að fullvissa sig um að hún sé fullbökuð áður en hún er tekin úr ofninum. Best er að bera hana fram heita, eða volga með þeyttum rjóma.

Ég elska nýbökuð brauð, ennþá heit þannig smjörið bráðnar og osturinn mýkist smá. Eini gallinn er að það tekur svo langan tíma að baka brauð. Þau þurfa að hefast og svo framvegis. Þess vegna finnst mér æðislegt að það séu til uppskriftir sem gera ráð fyrir því að maður geri deigið að kvöldi til, láti það hefast yfir nóttu og bakir svo um morguninn. Þessi uppskrift er svoleiðis, auk þess sem það þarf ekkert að hnoða þetta deig. Brauðið er bakað í potti inn í ofni (hægt að nota hvaða pott sem er svo framarlega sem hann má fara inn í ofn – s.s. engin plasthandföng) og verður það til þess að skorpan verður ótrúlega stökk og góð en brauðið mjúkt og gott inní. Það má líka leika sér aðeins með þessa uppskrift og bæta út í hana einhverju bragðbætandi eins og rifnum osti, kryddi, rúsínum eða já hverju sem manni dettur í hug. Þetta brauð hentar vel bara með smjöri og osti, en er líka ótrúlega gott með pestó og gott að bera fram með súpum.
Pottabrauð:
Tími: 15 mín undirbúningur kvöldið áður 30 mín hefast á borðinu + 45 mín í ofni
Hiti: 230°C
7,5 dl. hveiti
1 tsk. salt
1/2 tsk. þurrger
4 dl. vatn
1-2 dl. af rifnum osti eða öðru bragðbætandi t.d. venjulegur eða mexikóostur, sólþurrkuðir tómatar eða hverju sem manni dettur í hug.
Þurrefnum er blandað saman í vel rúmri skál og því næst er vatninu og osti eða öðru þ.h. bætt við og blandað með sleif. Þetta á að vera blautt – svolítið eins og þykkur grautur. Það þarf ekki að hnoða, heldur er nóg að hræra kröftulega til að allt blandist vel saman.
Þegar búið er að blanda þessu vel er plastfilma sett yfir skálina og hún látin standa (alls ekki í kæli) í lágmark 12 klst.

Þegar deigið hefur fengið að hefast í 12-18 klst. er hveiti sett á borð og deiginu hvolft á það. Deigið er mótað eins og hægt er í kúlu, hún þarf alls ekki að vera fullkomin. Gott er að vera með nóg af hveiti á höndum og borði því þetta getur klístrast. Þegar búið er að móta þetta er plastfilman sett yfir og þetta látið standa svona í 30 mín.
Á meðan beðið er eftir deiginu er kveikt á ofninum og potturinn settur inn til að hann hitni. Það er hægt að nota hvernig pott sem er, svo framarlega sem hann þolir að fara í ofninn. Ég hef sjálf notað stálpott, teflon pott úr Ikea og svo pott úr steipujárni – allt þetta hefur dugað. Eftir 30 mín er potturinn tekinn út – ath. hann er MJÖG heitur- og deigið sett í pottinn. Lokið er svo sett á og potturinn settur inn í ofninn.
Brauðið er bakað í 30 mín, en þá er lokið tekið af pottinum og brauðið bakað í 15 mín. í viðbót án loks. Þá fær það fallegan lit og skorpan verður enn betri. Þegar brauðið er tilbúið er það tekið úr ofninum og úr pottinum og látið kólna í smá stund áður en það er borið fram.
