Í dag rakst ég á sænska umfjöllun þar sem minnst var á klassíska sænska karamellu”bita”. Þetta eru smákökur sem eru stökkar að utan en seigar í miðjunni, ótrúlega einfaldar en alveg hrikalega bragðgóðar.
Ég bara varð að prófa að baka svona til að rifja upp gamlar minningar – og ég varð heldur betur ekki fyrir vonbrigðum. Ekki nóg með að þetta er alveg svakalega gott og erfitt að klára þetta ekki allt í einu, þá er uppskriftin svo rosalega einföld og fljótleg. Hér kemur uppskriftin – ég ætla svo að gera tvær tegundir í viðbót á næstu dögum, þ.e. með súkkulaðibragði og með piparkökubragði.
Karamellusnittur:
Fjöldi: sirka 50-60 stk.
Ofnhiti: 180°C annað hvort blástur eða undir og yfirhita
Tími: undirbúningur 20 mín. Bakstur 12-15 mín.
200 gr. mjúkt smjör
2,25 dl. sykur
4,5 dl. hveiti
2 msk. síróp
2 tsk. matarsódi
2 tsk. vanillusykur (má líka nota vanilludropa)
2 tsk. mulin engifer (í góðu lagi að sleppa)
Stillið ofninn á 180°C. Blandið öllum hráefnum saman í skál þannig þetta verði að þéttu deigi. Það er gott að setja engifer, en alls ekki nauðsynlegt. Ef smjörið er ekki nógu mjúkt er sniðugt að hnoða þetta í höndunum til að þetta blandist vel.
Gerið 5-6 rúllur úr deiginu og setjið á ofnplötu með bökunarpappír. Hafið ágætt bil á milli rúllanna því þær fletjast út við baksturinn. Þrýstið smá á þær svo að þær fletjist út. Gerið rendur á þær með gaffli til að fá fallegt munstur.
B
akið í ofni í 12-15 mín, allt eftir því hversu stökkar þær eiga að vera. Ef þær eru bakaðar stutt verða þær frekar mjúkar og seigar, en ef þær eru bakaðar lengi verða þær frekar stökkar. Þegar þetta er komið úr ofninum eru lengjurnar skornar á ská í sirka 2 cm. breiðar sneiðar. Að lokum er þetta látið kólna áður en þetta er borðað af bestu lyst 🙂 Þessar smákökur geymast best í lokuðu íláti.

Súkkulaðibananarúllutertan hjá Bakarameistaranum hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér og ég var því heldur betur ánægð þegar mér tókst að baka svipaða, eiginlega betri og meira djúsí, köku sjálf. Núna hef ég gert sömu uppskriftina í 3 veislum og þetta er ein af þeim kökum sem klárast alltaf. Hún er frekar einföld og ég læt fylgja góðar myndir af bakstursferlinu. Ég get ímyndað mér að það sé gott að setja t.d. jarðaber eða hindber í staðinn fyrir banana í kremið – en hef þó ekki prófað það sjálf enn sem komið er.
Bananarúlluterta:
Ofnhiti: 180°C annað hvort blástur eða undir og yfirhit
Tími: Undirbúningur 20 mín – bakstur 15 mín – kólnun og kremgerð 1 klst. og svo 10 mín til að klára
Tertudeig:
5 egg (aðskilin í eggjarauður og hvítur)
1 og 3/4 dl. sykur
200 gr. suðusúkkulaði
2-3 tsk. skyndikaffiduft (fer efitr því hversu sterkt kaffibragð á að vera – þessu má líka sleppa)
3/4 dl. heitt vatn
1/4 tsk. salt
Krem:
3 dl. rjómi
2 bananar
100 gr. suðusúkkulaði
1 tsk. vanilludropar
Aðferð:
Byrjið á því að leysa kaffið upp í heita vatninu. Bræðið súkkulaðið, annað hvort yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni (passið að brenna ekki, hita smá stund og hræra og hita svo aftur). Blandið saman kaffi og súkkulaði og látið standa á meðan restin er kláruð. Aðskiljið eggjarauður varlega frá hvítunum og þeytið rauðurnar með sykrinum þar til þetta er orðið ljóst og létt.
Þeytið svo eggjahvíturnar ásamt saltinu í annarri skál þangað til eggjahvíturnar eru orðnar stífþeyttar.
Blandið því næst súkkulaðiblöndunni varlega saman við sykur- og eggjablönduna. Næst er báðum blöndunum blandað varlega saman. Best að nota sleif eða sleikju til þess.
Setjið smjörpappír á ofnplötu. Mér finnst gott að spreyja eða smyrja smá olíu á smjörpappírinn, en passa að setja bara mjög lítið. Hellið deiginu á pappírinn og dreifið úr því þannig það þekji alla plötuna. Bakið svo í 15 mín í 180°C.
Þegar kakan er tekin út er rakt viskustykki lagt yfir hana og hún látin standa þannig í sirka 1 klst. Þetta er gert til að hún verði ekki of stökk til að hægt sé að rúlla henni. Á meðan er hægt að útbúa bananakremið. Þeytið rjómann ásamt vanilludropum og bræðið svo súkkulaðið annað hvort yfir vatnsbaði eða í örbylgjunni (alltaf varlega því það er auðvelt að brenna súkkulaði í örbylgjunni). Stappið banana frekar gróflega og blandið að lokum þeim ásamt súkkulaðinu saman við rjómann. Ekki hræra of mikið, heldur er best ef súkkulaðið blandist ekki alveg við rjómann.
Þegar þetta er tilbúið er tertubotninum snúið við þannig að hann liggi ofan á viskustykkinu. Dragið smjörpappírinn mjög varlega af. Setjið bananablönduna á botninn og dreifið vel úr henni. Notið svo viskustykkið til að ná að rúlla þessu upp. Komið svo rúllutertunni fyrir á því fati sem á að bera hana fram á og sigtið smá flórsykur yfir hana alla.

Ég er forfallinn hráskinku aðdáandi og sérstaklega þegar henni fylgir annað ítalskt góðgæti eins og parmesanostur. Þar sem ég er að prófa mig áfram á lágkolvetnamataræðinu þá ákvað ég að reyna að búa til eitthvað djúsí og gott salat sem hentar því vel. Útkoman varð það góð að ég gæti borðað þetta í öll mál. Og það besta er, er að þetta er ótrúlega einfalt – og ekkert mál að eiga allt hráefni til í ísskápnum og útbúa þetta þegar aðrir á heimilinu fá eitthvað kolvetnaríkara.
Hér er uppskriftin, en það er tilvalið að bæta því við sem hver vill. T.d. get ég ímyndað mér að það sé gott að setja ólífur í þetta líka.
Ferskt ítalskt salat með hráskinku:
Dugar fyrir 1
Tími: 15 mín
Klettasalat (ruccola) (magn fer eftir smekk, ég nota tæplega hálfan poka í einn skammt fyrir mig)
3-4 sneiðar af hráskinku
ferskur mozzarellaostur ( best að nota litlu kúlurnar, en oft nota ég 1/3 af stórri kúlu sirka og sker bara í litla bita)
ferskur parmesan
3-5 konfekt – eða kirsuberjatómatar
sólþurrkaðir tómatar eftir smekk
fersk basilika (má sleppa, en gerir ótrúlega gott bragð)
2 tsk. grænt pestó
Aðferð:
Klettasalatið er skolað og sett á disk. Mozzarellaostinum er stráð yfir, tómatarnir skornir í “báta” og settir yfir og svo er hráskinkan rifin niður og sett yfir allt saman. Sólþurrkuðu tómatarnir eru skornir smátt niður og bætt út í salatið. Pestóinu er dreift eins og hægt er (ég set bara smá klessur hér og þar) yfir allt saman og basilikan hökkuð smátt og sett yfir. Að lokum er ferskur parmesan rifinn yfir.
Ef maður er ekki að spá í kolvetnum er gott að fá sér hvítlauksbrauð með þessu.
